Hafa samband
[email protected]
Kennitala
701117-1230
VSK númer
130305
ÖRLÖ Nutrition er vörumerki í eigu VAXA Technologies
ÖÖRLÖ glerkrukkan þín er smíðuð úr fyrsta flokks ítölsku gleri. Hún er hugsuð til að nota aftur og aftur en hún er einnig 100% endurvinnanleg.
Þú getur endurunnið álspreyhylkið þitt hvar sem er, einfaldlega setja það í málm-endurvinnslutunnu.
Allar umbúðir VAXA eru framleiddar úr endurunnum pappír og blekið sem við notum er úr smáþörungum! Hægt er að endurvinna umbúðirnar eða jafnvel rífa þær niður og nota í moltutunnu.
Smáþörungaræktun okkar hefur engin slæm áhrif á öll þau dýrmætu vistkerfi sem þrífast á plánetunni okkar, hvort sem um er að ræða úthöf, ár eða ræktarland.
Framleiðsluferlið byggir á E2F™ (Energy 2 Food) kerfum VAXA sem nýtir 99% minna land og vatn en hefðbundin framleiðsla auk þess að vera kolefnisneikvætt.
Vörurnar okkar eru aðgengilegar viðskiptavinum um allt land í gegnum orlonutrition.is og í verlsunum Hagkaupa og Samkaupa. Samstarfsaðilar okkar, Dropp og Gorilla Vöruhús sjá um að senda vörurnar til viðskiptavina.
Áskriftarleiðirnar okkar eru bæði góðar fyrir jörðina og veskið þitt. Þegar þú kemur í áskrift færðu 15% afslátt af ÖRLÖ vörunum þínum.
Þetta er frekar einfalt. Þú velur magnið og velur hversu oft þú vilt fá sendingar, t.d. mánaðarlega. Áskriftin þín endurnýjast svo sjálfkrafa þar til þú segir henni upp. Enginn uppsagnarfrestur er á áskriftarleiðum okkar, þú stjórnar algjörlega ferðinni.
Frábær spurning. Það virkar einfaldlega þannig að þú skráir þig inn á ÖRLÖ reikninginn þinn hér og sýslar með þína áskrift eins og þér hentar. Ef þú lendir í einhverjum vandræðum þá aðstoðar þjónustuverið okkar þig á [email protected]
Við leggjum mikla áherslu á ánægju viðskiptavina okkar og markmiðið er alltaf að þú fáir frábæra vöru á góðu verði. Ef þú vilt skila vörunni sem þú keyptir getur þú alltaf haft samband við okkur á [email protected] og gefur upp pöntunarnúmerið þitt. Við leysum annað hvort málið með því að láta þig fá nýja vöru eða með endurgreiðslu. Í ákveðnum tilvikum gætum við beðið þig um að senda okkur vöruna til baka. Í ljósi þess að hvert tilvik er einstakt biðjum við þig um að geyma vöruna þangað til málið hefur verið afgreitt. Við afgreiðum beiðni um skil innan tveggja daga.
Pantanir eru yfirleitt afgreiddar næsta virka dag eftir að greiðsla hefur borist. Hægt er að fá sent með Dropp eða Póstinum. Þú velur þinn afhendingarstað í pöntunarferli.
Afhendingartími er venjulega 1–3 virkir dagar innanlands.
Ef pöntun seinkar eða upp koma spurningar, vinsamlegast hafðu samband við okkur á [email protected]
Já, ÖRLÖ eru til sölu í Bandaríkjunum, www.orlonutrition.com. Auk þess sendum við vörur til Evrópu. Hafðu samband við [email protected] ef þú þarf aðstoð við sendingar erlendis.