kr. 0

Karfa

Engin vara í körfu.

Halda áfram að versla

Hafa samband

Upplýsingar

Hafa samband
[email protected]

Kennitala
701117-1230

VSK númer
130305

ÖRLÖ Nutrition er vörumerki í eigu VAXA Technologies

Algengar spurningar

Sjálfbærni

Smáþörungar ÖRLÖ eru ræktaðir með orkukstraumum beint frá Jarðvarmavirkun ON á Hellisheiði, auk þess sem við nýtum náttúrulega uppsprettu kolefnis og íslenskt jökulvatn. Framleiðsluferlið byggir á E2F™ (Energy 2 Food) kerfum VAXA sem nýtir 99% minna land og vatn en hefðbundin framleiðsla auk þess að vera kolefnisneikvætt.

ÖÖRLÖ glerkrukkan þín er smíðuð úr fyrsta flokks ítölsku gleri. Hún er hugsuð til að nota aftur og aftur en hún er einnig 100% endurvinnanleg.

Þú getur endurunnið álspreyhylkið þitt hvar sem er, einfaldlega setja það í málm-endurvinnslutunnu.

Allar umbúðir VAXA eru framleiddar úr endurunnum pappír og blekið sem við notum er úr smáþörungum! Hægt er að endurvinna umbúðirnar eða jafnvel rífa þær niður og nota í moltutunnu.

Já, allar vörur frá ÖRLÖ eru vegan. Við höfum skuldbundið okkur til þess að vernda og hlúa að plánetunni okkar og náttúruauðlindum hennar á sama tíma og við bjóðum upp á vöru sem allir geta neytt, óháð mataræði. Við lítum svo á að enginn eigi að þurfa að neita sér um holla næringu vegna hugsjóna sinna eða mataræðis.

Smáþörungaræktun okkar hefur engin slæm áhrif á öll þau dýrmætu vistkerfi sem þrífast á plánetunni okkar, hvort sem um er að ræða úthöf, ár eða ræktarland.

Framleiðsluferlið byggir á E2F™ (Energy 2 Food) kerfum VAXA sem nýtir 99% minna land og vatn en hefðbundin framleiðsla auk þess að vera kolefnisneikvætt.

Þjónusta

Vörurnar okkar eru aðgengilegar viðskiptavinum um allt land í gegnum orlonutrition.is og í verlsunum Hagkaupa og Samkaupa. Samstarfsaðilar okkar, Dropp og Gorilla Vöruhús sjá um að senda vörurnar til viðskiptavina.

Áskriftarleiðirnar okkar eru bæði góðar fyrir jörðina og veskið þitt. Þegar þú kemur í áskrift færðu 15% afslátt af ÖRLÖ vörunum þínum.

Þetta er frekar einfalt. Þú velur magnið og velur hversu oft þú vilt fá sendingar, t.d. mánaðarlega. Áskriftin þín endurnýjast svo sjálfkrafa þar til þú segir henni upp. Enginn uppsagnarfrestur er á áskriftarleiðum okkar, þú stjórnar algjörlega ferðinni.

Frábær spurning. Það virkar einfaldlega þannig að þú skráir þig inn á ÖRLÖ reikninginn þinn hér og sýslar með þína áskrift eins og þér hentar. Ef þú lendir í einhverjum vandræðum þá aðstoðar þjónustuverið okkar þig á [email protected]

Við leggjum mikla áherslu á ánægju viðskiptavina okkar og markmiðið er alltaf að þú fáir frábæra vöru á góðu verði. Ef þú vilt skila vörunni sem þú keyptir getur þú alltaf haft samband við okkur á [email protected] og gefur upp pöntunarnúmerið þitt. Við leysum annað hvort málið með því að láta þig fá nýja vöru eða með endurgreiðslu. Í ákveðnum tilvikum gætum við beðið þig um að senda okkur vöruna til baka. Í ljósi þess að hvert tilvik er einstakt biðjum við þig um að geyma vöruna þangað til málið hefur verið afgreitt. Við afgreiðum beiðni um skil innan tveggja daga.

Pantanir eru yfirleitt afgreiddar næsta virka dag eftir að greiðsla hefur borist. Hægt er að fá sent með Dropp eða Póstinum. Þú velur þinn afhendingarstað í pöntunarferli.

Afhendingartími er venjulega 1–3 virkir dagar innanlands.

Ef pöntun seinkar eða upp koma spurningar, vinsamlegast hafðu samband við okkur á [email protected]

Já, ÖRLÖ eru til sölu í Bandaríkjunum, www.orlonutrition.com. Auk þess sendum við vörur til Evrópu. Hafðu samband við [email protected] ef þú þarf aðstoð við sendingar erlendis.

Skráðu þig á póstlistann okkar

Innskráning á Mitt ÖRLÖ